Gjaldfrjálsar tannlækningar fyrir 8 og 9 ára

mbl.is/Ernir

Samningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna, sem tók gildi þann 15. maí 2013, mun taka til 8 og 9 ára barna frá og með 1. janúar 2015. Þetta þýðir að tannlækningar séu greiddar af fullu af SÍ fyrir utan 2.500 kr. árlegt komugjald.

Tannlækningar eru greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands fyrir utan 2.500 kr., árlegt komugjald, að því er segir í tilkynningu frá SÍ.

Fram kemur, að samningurinn taki einnig til allra barna í bráðavanda, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, óháð áfangaskiptingu samningsins.

„Forsenda greiðsluþátttöku SÍ er skráning barna hjá heimilistannlækni en nú þegar hafa um 50.000 börn verið skráð.

Gjaldfrjálsar tannlækningar hafa komið inn í skrefum frá 15. maí 2013, í upphafi tók samningurinn til 15,16 og 17 ára barna en síðan hafa bæst við 3ja, 10, 11, 12 13 og 14 ára börn og nú 1. janúar 2015 bætast við 8 og 9 ára börn. Frá og með 1. janúar 2018 munu öll börn yngri en 18 ára falla undir samninginn,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert