Kvenfélögin segja Samkeppniseftirlitinu til

Myndin tengist ekki fréttinni á annan hátt en að á …
Myndin tengist ekki fréttinni á annan hátt en að á henni sjást matvæli. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Kvenfélagasamband Íslands telur það hlutverk Samkeppniseftirlitsins að vinna gegn matarsóun, segir í fyrirsögn fréttatilkynningar og ályktunar frá Kvenfélagasambandi Íslands.

„Stjórnarfundur Kvenfélagasambands Íslands, haldinn 25. febrúar 2015 á Hallveigarstöðum hvetur framleiðendur, birgja og verslanir til að bregðast við mikilli matarsóun sem á sér stað þegar vörum sem komnar eru á síðasta söludag er fargað, í stað þess að þær séu t.d. seldar á niðursettu verði eða viðskiptaháttum sé breytt þannig að matvæli verði nýtt.

Kvenfélagasamband Íslands hvetur framleiðendur, birgja og verslanir til þess að sameinast og sækja um undanþágu til Samkeppniseftirlitsins á grundvelli undanþáguheimildar 15. greinar samkeppnislaga um verðsamráð.

Með vísan í 1. gr. samkeppnislaga, er segir að vinna beri að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta telur Kvenfélagasamband Íslands það hlutverk Samkeppniseftirlitsins að vinna gegn þeirri misnotkun sem matarsóun er,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert