Eldri hjón duttu í rúllustiga

Eldri hjón duttu í rúllustiga í Hörpu á sjöunda tímanum í gær með þeim afleiðingum að þau drógust með stiganum og fengu smááverka víða um líkamann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var tilkynnt um líkamárás í Grafarvoginum á þriðja tímanum í nótt. Árásarþoli sagði tvo menn, sem hann nafngreindi, hafa komið heim til sín og sakað sig um þjófnað á síma. Þá hefði annar maðurinn hrint honum ítrekað og slegið hann í andlitið. Fórnarlambið var flutt á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert