Alvarlegt bifhjólaslys í Borgarfirði

Maður og kona voru flutt til aðhlynningar í Reykjavík.
Maður og kona voru flutt til aðhlynningar í Reykjavík. mbl.is/Þórður Arnar

Alvarlegt bifhjólaslys varð í dag í Borgarfirði við Hvítársíðu, en maður og kona voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu rann bifhjólið út af veginum, en slysið átti sér stað á malarvegi. 

Maðurinn var að sögn lögreglu alvarlega slasaður, en konan eitthvað minna. Bæði voru þó flutt með þyrlunni til Reykjavíkur. Ekki liggja þó fyrir nánari upplýsingar um líðan þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert