„Dæmigert en milt 17. júní veður“

Dumbungur verður á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Dumbungur verður á höfuðborgarsvæðinu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á þjóðhátíðardaginn skiptir veðrið Íslendinga miklu máli, enda fer mest öll dagskrá fram utandyra.

Dumbungur verður yfir höfuðborgarsvæðinu og dropar á lofti fram eftir degi en þó mun sólin sennilega eitthvað láta sjá sig.

„Hitastigið gæti farið upp í 11-12 gráður en ekki mikið meira,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni. Á Akureyri og fyrir austan verður hins vegar hlýtt og hiti gæti farið upp undir 18 gráður. Á Vestfjörðum verður sennilega öllu kaldara.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert