Slökkviliðið kallað út á Meistaravelli

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld á Meistaravelli í Reykjavík. Tveir slökkviliðsbílar auk körfubíls voru sendir á svæðið. Að sögn slökkviliðsins er þó aðeins um lítið tjón að ræða í einni íbúð eftir að eldamennska fór úr böndunum. 

Er nú unnið að því að reykræsta íbúðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert