Mikil aukning í sölu dýrari bíla á fyrstu 8 mánuðum ársins í samanburði við fyrra ár

Porsche Cayenne.
Porsche Cayenne. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýskráðum fólksbílum hefur fjölgað um 42% á fyrstu átta mánuðum ársins frá sama tíma í fyrra.

Skráðir hafa verið tæplega 11.000 nýir bílar á þessu ári, samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu.

Í umfjöllun um bílasöluna í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að aukning er í sölu flestra tegunda bíla en þó er sérstaklega mikil aukning í sölu dýrari tegunda bíla. Sala á Porsche hefur rúmlega tvöfaldast milli tímabila en seldir hafa verið 53 nýir Porsche-bílar á fyrstu 8 mánuðum ársins. Verð þeirra er frá 12 milljónum króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert