Veittu 10 milljónir til rannsókna á brjóstakrabbameini

Styrkþegar Göngum saman
Styrkþegar Göngum saman Ljósmynd/ Göngum saman

 Miðvikudaginn 7. október sl. veitti styrktarfélagið Göngum saman 10 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Með þessari styrkveitingu hefur Göngum saman úthlutað alls rúmum 60 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007.

Fimm aðilar fengu styrk að þessu sinni:

  • Birna Þorvaldsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands hlaut 3 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Telomerar og brjóstakrabbamein
  • Edda Sigríður Freysteinsdóttir, náttúrufræðingur á Landspítala hlaut 1,4 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Ættlægt brjóstakrabbamein og möguleg áhættugen.
  • Erika Morera, doktorsnemi við Háskóla Íslands hlaut 1 milljón krónur í styrk fyrir verkefnið Samanburður á eðlilegri og illkynja bandvefsumbreytingu stofnfruma úr brjóstkirtli.
  • Guðrún Valdimarsdóttir lektor við Læknadeild Háskóla Íslands hlaut 2 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Þyrnirósasvefn brjóstaæxlisfruma
  • Katrín Birna Pétursdóttir meistaranemi við Háskóla Íslands hlaut 2,6 milljónir króna í styrk fyrir verkefnið Breytingar á genatjáningu í lyfjaónæmum brjóstastofnfrumulínum í tengslum við stofnfrumueiginleika og aldehyde dehydrogenasa virkni (ALDH).
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert