Snjóþekja á ýmsum fjallvegum

Það er snjór og hálka á flestum aðalleiðum
Það er snjór og hálka á flestum aðalleiðum mbl.is/Rax

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Snjóþekja er á Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Snjóþekja er á Hrafnseyrarheiði og norður í Árneshrepp.

Það er að mestu orðið autt á vegum á Norðurlandi vestra en þó eru hálkublettir yst á Siglufjarðarvegi. Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðausturlandi og snjóþekja á Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á stöku fjallvegum en autt á láglendi. Greiðfært er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert