SkjárEinn fær nýtt heimili

Magnús Ragnarsson er kampakátur með flutningana.
Magnús Ragnarsson er kampakátur með flutningana.

Allar útsendingar SkjásEins hafa nú verið færðar í höfuðstöðvar Símans, Ármúla 25. 

Í fréttatilkynningu Símans segir Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðlunar og markaða, flutninginn ramma inn breytingarnar sem hafa orðið á Símanum, þar sem sjónvarp sé nú hluti af kjarnastarfseminni.

„Við höfum endurskipulagt kjarnann síðustu misseri. SkjárEinn er ekki lengur afleggjari geymdur í Skipholti heldur kominn í hjarta Símans í Ármúla enda löngu orðinn samofinn okkar kjarnastarfsemi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert