Búvörusamningurinn ekki tekið gildi

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

Búvörusamningurinn sem undirritaður var af landbúnaðarráðherra og Bændasamtökum Íslands hefur ekki enn tekið gildi. Það þýðir að Alþingi getur látið framkvæmdavaldið semja upp á nýtt um hann. Þetta segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

Hæstiréttur hafnaði í dag beiðni FA um flýtimeðferð á máli þar sem félagið vildi láta reyna á hvort hægt væri að hnekkja búvörusamningnum áður en Alþingi afgreiði frumvarp um samninginn. FA telur samninginn um starfsskilyrði nautgriparæktar ólögmætan.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir að það séu að sjálfsögðu vonbrigði að dómstólar heimili ekki flýtimeðferð í málinu, sem varði mikla hagsmuni margra fyrirtækja og alls almennings. Hins vegar þýði niðurstaða Hæstaréttar að ekki sé rétt að samningurinn standi, heldur sé hægt að gera breytingar á honum.

„Hæstiréttur Íslands telur samninginn ekki hafa öðlast gildi. Þar með er þinginu í lófa lagið að leggja fyrir framkvæmdavaldið að semja upp á nýtt og lagfæra stórfellda ágalla á búvörusamningunum. Til dæmis hlýtur að þurfa að mæta alvarlegum athugasemdum Samkeppniseftirlitsins. Það er gagnlegt að fá fram þá afstöðu Hæstaréttar að hér stöndum við ekki frammi fyrir orðnum hlut,“ segir Ólafur í tilkynningu og bætir við: „Við hvetjum Alþingi áfram til að láta hvorki frumvarpið né samningana sjálfa standa án breytinga. FA áskilur sér síðan allan rétt til að skoða það, fari svo að Alþingi samþykki frumvarpið um búvörusamninga, hvort ríkinu og Bændasamtökunum verði stefnt fyrir dóm vegna málsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert