Stefnt er að því að opna nýtt hótel í Icelandair-keðjunni á Hljómalindarreitnum um helgina. Þetta segir Ólöf Guðmundsdóttir hótelstjóri í samtali við Morgunblaðið, en hótelið ber nafnið Canopy Reykjavík | City Centre.
Á hótelinu verða 112 herbergi og segir Ólöf í Morgunblaðinu í dag, að bókanir fari vel af stað. Götuframkvæmdir við Smiðjustíg og Hverfisgötu hafa þó tafið fyrir opnun en í maí var fyrirhugað að opna hótelið um miðjan júní.
Um sextíu manns munu starfa á hótelinu og var mikill áhugi á störfunum meðal Íslendinga.