Einn var fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var áreksturinn ekki eins alvarlegur og hann virtist fyrst vera en einn sjúkrabíll var sendur á staðinn ásamt dælubíl.
Geta ökumenn á leið vestur á Miklubraut búist við umferðartöfum vegna árekstursins.