Þrír í vímu undir stýri

mbl.is/júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för þriggja ökumanna í gærkvöldi og nótt sem reyndust annaðhvort vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Sá fyrsti var stöðvaður á Vesturlandsvegi skömmu fyrir átta í gærkvöldi þar sem tryggingar bifreiðarinnar voru ekki í gildi. 

Ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna og með fíkniefni á sér. Það sama átti við um farþega sem var með honum í för, það er hann var einnig með fíkniefni í sinni vörslu.

Skömmu eftir miðnætti var bifreið stöðvuð við Eiðsgranda. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Sá þriðji var stöðvaður í Ingólfsstræti skömmu fyrir hálftvö í nótt en ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert