Líkamsárás við 10-11 á Hverfisgötu

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögeglunni á höfuðborgarsvæðinu barst um hálffjögurleytið í dag tilkynning um líkamsárás á Hverfisgötu, til móts við verslunina 10-11 við Barónstíg. Þegar lögregla koma á vettvang þá reyndist árásarmaðurinn vera farinn af vettvangi, en eftir sat ungur karlmaður sem var slasaður á fæti.

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið þar sem grunur lék á að hann væri fótbrotinn. Leit að árásaraðilanum hefur enn engan árangur borið að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert