Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hafnaði í gær tillögu um breytingu á deiliskipulagi fyrir Laugaveg 55.
L55 fasteignafélag vann tillöguna í samstarfi við borgina og segir Sigurlaug Sverrisdóttir, stjórnarformaður L55, að niðurstaðan hafi því komið verulega á óvart.
L55 lagði upprunalega inn aðra tillögu og barst í kjölfarið beiðni frá Reykjavíkurborg um samstarf. „Við byrjuðum að vinna eftir gildandi deiluskipulagi í upphafi og lögðum inn teikningar sem samsvara því en fengum þá beiðni frá borginni um að vinna þetta með þeim,“ segir Sigurlaug í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.