Sæbraut lokað í vesturátt

Umferðaróhapp varð á Sæbrautinni um hálfsexleytið í kvöld þegar bíl var ekið á ljósastaur. Loka þarf götunni um tíma á meðan að starfsmenn Orkuveitunnar taka rafmagn af ljósastaurnum og hefur það valdið nokkrum töfum á bílaumferð í vesturátt.

Engin meiðsl urðu á fólki að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem gerir ráð fyrir að umferð verði fljótt hleypt á að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert