Töldu vindáttina vera hagstæða

Mynd úr safni og er ekki af hópnum sem fór …
Mynd úr safni og er ekki af hópnum sem fór á Langjökul í gær. mbl.is/Ómar Óskarsson

Leiðsögumenn Mountaineers of Iceland töldu að óhætt væri að fara með hóp ferðamanna á vélsleða á Langjökli í gær þrátt fyrir að Veðurstofan hafi gefið út stormviðvörun. Segir í tilkynningu að það hafi verið vegna fyrri reynslu leiðsögumanna, góðrar þekkingar á svæðinu og hagstæðrar vindáttar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem ferðaskrifstofan sendi frá sér í nótt.

Líkt og fram kom í gær þá leitaði stór hópur björgunarsveitarmanna pars sem hafði orðið viðskila við hóp sinn á Langjökli en fólkið var í vélsleðaferð á vegum Mountaineers of Iceland á jöklinum. Parið fannst í gærkvöldi heilt á húfi.

Frétt mbl.is: Parið er fundið

Yfirlýsing fyrirtækisins:

„Mountaineers of Iceland vill færa öllu því björgunarsveitafólki sem tók þátt í leit og björgun fólksins, sem varð viðskila við hóp á vegum fyrirtækisins í vélsleðaferð við Langjökul í dag, hugheilar þakkir.
Vegna atviksins í dag skal taka fram að leiðsögumenn Mountaineers of Iceland þekkja svæðið sem hópurinn fór um mjög vel, en þeir hafa samanlagt áratugareynslu í ferðum á svæðinu. Eins og fram hefur komið hafði verið gefin út stormviðvörun en vegna hagstæðrar vindáttar á svæðinu var ákveðið að fara af stað upp að jöklinum eftir að leiðsögumenn fóru á undan hópnum til að kanna aðstæður sem að þeirra mati reyndust ágætar. Vegna fyrri reynslu leiðsögumanna, góðrar þekkingar á svæðinu og hagstæðrar vindáttar var ákveðið að halda af stað.
Mountaineers of Iceland tekur öryggi allra þeirra sem ferðast á vegum fyrirtækisins alvarlega og setur velferð ferðamanna ávallt í fyrsta sæti. Ferðamennirnir sýndu hárrétt viðbrögð með því að fara eftir leiðbeiningum sem gefnar höfðu verið í upphafi ferðar og bíða við vélsleðann um leið og þeir áttuðu sig á að þeir höfðu orðið viðskila við hópinn. Þessi viðbrögð má þakka góðum undirbúningi leiðsögumanna Mountaineers of Iceland áður en lagt er af stað í ferðina.
Atvikið í dag verður rannsakað gaumgæfilega og farið verður í saumana á öllu því sem kom upp á öllum stigum málsins. Í kjölfarið verður verklag skoðað og hvort eitthvað megi endurskoða með tilliti til þessa atviks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert