Sex fluttir á slysadeild

Landspítali.
Landspítali. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sex voru fluttir á slysadeild eftir tvö umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi, að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þrír slösuðust þegar bifreið var ekið út af með þeim afleiðingum að hún hafnaði á ljósastaur á mótum Strandvegar og Borgarvegar í Grafarvoginum um ellefuleytið í gærkvöldi. Skömmu síðar varð harður árekstur tveggja bifreiða á Arnarnesvegi.

Talsverður erill hefur verið í sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu í alla nótt, að sögn varðstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert