Lögregla boðar til blaðamannafundar

Birnu Brjánsdóttur hefur verið saknað frá því aðfaranótt laugardags. Lögregla …
Birnu Brjánsdóttur hefur verið saknað frá því aðfaranótt laugardags. Lögregla hefur nú boðað til blaðamannafundar vegna hvarfs hennar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðar til blaðamannafundar, vegna rannsóknar hennar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, klukkan fimm í dag. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem lögregla sendi frá sér nú á fjórða tímanum. Skömmu áður hafði verið greint frá því að nýj­ar vís­bend­ing­ar í hvarfi Birnu Brjáns­dótt­ur hafi orðið til þess að björg­un­ar­sveit­ir hafa verið kallaðar aft­ur til miðstöðvar til að end­ur­skipu­leggja leit­ina. Þetta staðfesti upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjarg­ar, Þor­steinn G. Gunn­ars­son, í sam­tali við mbl.is. 

Um 500 björgunarsveitarmenn hafa leitað Birnu nú um helgina, en ekkert hefur til hennar spurst frá því að hún hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert