Freista þess að fá skó eftir Kanye

Það er ýmislegt lagt á sig til að geta keypt …
Það er ýmislegt lagt á sig til að geta keypt skó eftir Kanye West. mbl.is/Golli

Nokkur fjöldi fólks hefur beðið í nótt fyrir utan verslunina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu þar sem nýjasta skólína tónlistarmannsins Kanye West fer í sölu í dag. Strangar reglur virðast gilda um söluna en Húrra segist hafa skýr fyrirmæli frá Adidas Global um að gefa ekki upp hversu mörg pör verslunin hefur fengið.

Skólínan heitir YEEZY BOOST 350 V2. Húrra opnar kl. 10 en viðskiptavinum, sem sumir hafa beðið að minnsta kosti frá klukkan 1, þegar þessar myndir voru teknar, verður hleypt inn í 10 manna hópum. Ekki verður í boði að máta skóna, að því er fram kemur á Facebook-síðu Húrra.

Skórnir kosta 29.900 krónur í fullorðinsstærðum og 21.990 í barnastærðum.

Röðin hóf að myndast strax eftir lokun Húrra í gær.
Röðin hóf að myndast strax eftir lokun Húrra í gær. mbl.is/Golli
Þessi höfðu það náðugt á stéttinni í morgun.
Þessi höfðu það náðugt á stéttinni í morgun. mbl.is/Golli
Röðin nær upp Vatnsstíg og niður Laugaveg að Brynju.
Röðin nær upp Vatnsstíg og niður Laugaveg að Brynju. mbl.is/Golli
Ljósmynd/Freyr
Ljósmynd/Freyr
Ljósmynd/Freyr
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert