Greiðfært á Suðurlandi

Greiðfært er að mestu á Suðurlandi en hálka eða hálkublettir á útvegum. Það er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi þó aðallega á fjallvegum.  

Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir, þæfingur og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Hálfdán.

Greiðfært er að mestu á Norðurlandi en þó er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á útvegum og einnig á fjallvegum.

Það er að mestu greiðfært á láglendi á Austurlandi en hálka eða hálkublettir á fjallvegum. Greiðfært er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert