Vilja „pop-up“-veitingastað í Leifsstöð

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Árni Sæberg

Isavia auglýsir eftir aðilum til að reka veitingastað í svokölluðu „pop-up“-rými í suðurhluta Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Segir þar að fyrirkomulagið sé þekkt á flugvöllum erlendis og gangi yfirleitt undir þessu „pop-up“-heiti.

Fyrir sumarið sé þá auglýst eftir aðilum til þess að reka veitingastað en fyrir vetrartímabilið verði sérverslunum einnig boðið að sækja um.

„Um er að ræða verslunar- og veitingarými sem auglýst verður til útleigu í tvö tímabil á ári, sumar og vetur, fimm til sex mánuði í senn,“ segir í tilkynningunni.

35 fermetra svæði

„Með þessari nýjung vill Isavia koma til móts við mismunandi þjónustuþarfir eftir árstíma og farþegafjölda. Um suðurhluta flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli fara flestallir þeir farþegar sem millilenda hér á landi á milli Evrópu og Norður-Ameríku og stoppa hér í stutta stund.

Því er nú leitað að aðila sem getur afgreitt mat hratt og vel og höfðar til flugfarþega sem vilja fá sér hressingu meðan á 20-70 mínútna stoppi þeirra á Keflavíkurflugvelli stendur.“

Greint er frá því að svæðið sé um 35 fermetrar að stærð og að fjöldi farþega gangi fram hjá því.

Frestur til að lýsa yfir áhuga um rekstur í rýminu í sumar er ellefu dagar, eða til 21. apríl næstkomandi, að því er fram kemur á vef Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert