Ísland að dragast aftur úr hvað varðar réttindi hinsegin fólks

Regnbogakortið 2017.
Regnbogakortið 2017. Kort/ILGA-Europe

Ísland uppfyllir eingöngu 47% skilyrða Regnbogakorts baráttusamtakanna ILGA-Europe, samanborið við 59% árið 2016. Kortið gefur til kynna stöðu ríkja hvað varðar réttindi hinsegin fólks.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökunum '78 en í dag er alþjóðadagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu.

Það sem dregur Ísland helst niður á þessum lista er skortur á víðtækri jafnréttislöggjöf sem bannar mismunun á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyneinkenna. Einnig er löggjöf um réttindi transfólks ábótavant enda er enn krafist sjúkdómsgreiningar og læknismeðferðar til þess að þeir einstaklingar geti fengið nafni sínu og kyni breytt í þjóðskrá. Þá er ekki búið að banna ónauðsynleg inngrip í líkama intersex-barna og líkamleg friðhelgi þeirra er því ekki tryggð,“ segir í frétt á vef Samtakanna '78.

Þar segir að Malta sé það ríki sem trónir á toppi Regnbogakortsins með 88% uppfylltra skilyrða.

Vega þar þyngst lög sem sett voru árið 2014 sem veita trans- og intersex-fólki aukinn rétt yfir eigin líkömum. Þá getur trans-fólk fengið nafnabreytingu og breytingu á kyni í þjóðskrá án þess að vera greint með geðsjúkdóm og læknisfræðilega ónauðsynleg inngrip í líkama intersex-barna án þeirra samþykkis hafa verið bönnuð.

Samtökin segja skjóta skökku við að á sama tíma og Ísland sé að dragast aftur úr samanburðarríkjum hafi fjárframlög til samtakanna staðið í stað og lækkað að raunvirði um meira en 60%.

Þá stöndum við frammi fyrir því að þurfa mögulega að loka Hinseginvænni félagsmiðstöð Ungliða S’78 sem komið var á fót með tímabundnum styrkjum frá velferðarráðuneytinu og Reykjavíkurborg árið 2016. Hinsegin ungmenni eru í margfaldri áhættu á að verða fyrir fordómum og einelti á við aðra jafnaldra sína og allar innlendar og erlendar rannsóknir sýna að algengi þunglyndis, kvíða, sjálfsskaða og sjálfsvíga sé mun hærra í þessum hópi.

Á næsta ári eiga Samtökin ’78 afmæli og fagna 40 ára starfi í þágu mannréttinda og vitundarvakningar um stöðu hinsegin fólks hérlendis sem og erlendis. Það væri svo sannarlega kærkomin afmælisgjöf ef stjórnvöld tækju sér til fyrirmyndar allan þann metnað sem settur hefur verið í að tryggja jafnrétti kynjanna og útvíkka jafnréttishugtakið þannig að unnið sé að raunverulegu jafnrétti allra jaðarsettra hópa samfélagsins. Þar ætti Ísland svo sannarlega að vera í fremstu röð!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert