Slagsmál á tjaldsvæði

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Rétt fyrir miðnætti í nótt fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um slagsmál á tjaldsvæði í austurbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang vísaði hún hluteigandi í burtu, en skömmu síðar var annar aðilinn mættur á ný. Var hann með hótanir bæði við starfsfólk og gesti.

Samkvæmt dagbók lögreglu var viðkomandi handtekinn og fluttur í fangageymslu lögreglu og verður yfirheyrður síðar vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert