Daníel nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78

Daníel Arnarsson er nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78.
Daníel Arnarsson er nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78. ljósmynd/Samtökin '78

Daníel Arnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Samtakanna '78. Hann hefur störf 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna

Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir framkvæmdastýra sagði starfi sínu hjá félaginu lausu á dögunum. Að því er fram kemur í fréttinni færir stjórn Samtakanna ‘78 Helgu bestu þakkir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

Í kjölfar uppsagnarinnar hófst ráðningarferli þar sem stjórnin leitaði til umsækjenda sem sóttu um stöðuna síðla árs 2016 og voru þá metnir hæfir af stjórn og mannauðsráðgjöfum. Úr varð að Daníel Arnarssyni var boðin staða framkvæmdastjóra félagsins. 

Daníel Arnarsson hefur nýlokið námi við Háskóla Íslands en hann útskrifast þaðan með BA-gráðu í félagsfræði. Daníel hefur verið virkur í félagastarfi síðan 2007, bæði í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði sem og í Samtökunum '78. Hann hefur tekið þátt í ungliðastarfi og kosningabaráttu árin 2009, 2013 og 2016 og er jafnframt varaþingmaður fyrir VG og situr í stjórn flokksins. Daníel er vel kunnugur rekstri en hann var framkvæmdastjóri VG frá 2014-2016 og rak áður kaffihús Te & kaffi ásamt öðrum, að því er fram kemur í fréttinni. 

„Daníel hefur mikinn áhuga á mannréttindabaráttu og hefur ávallt sett hana á oddinn þegar kemur að félagslegu starfi bæði innan pólitíkurinnar sem og í öðrum störfum. Daníel sat í trúnaðarráði Samtakanna '78 frá mars 2015 til september 2016. Reynsla Daníels af rekstri og því vinnuumhverfi sem hann kemur úr mun koma sér vel í starfi Samtakanna '78.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert