Ekki búist við frekari skriðuföllum

Gröfumenn reyndu í gær að opna leið fyrir vatnið við …
Gröfumenn reyndu í gær að opna leið fyrir vatnið við brúna yfir Hlíðarendaá á Eskifirði. Ljósmynd/Visit Eskifjörður

Ekki er búist við frekari skriðuföllum á Austfjörðum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Eins og mbl.is fjallaði um í morgun féll aurskriða í nótt vegna vatnavaxtanna á Seyðisfirði. 

Skriðan féll nærri tveimur húsum á Seyðisfirði þegar Þófalækur hljóp. Annað húsið er íbúðarhús en hitt er geymsluhúsnæði, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Engin slys urðu á fólki en húsin höfðu verið rýmd um miðjan dag í gær vegna mikillar úrkomu.

Hefur þurft að rýma hús og rjúfa vegi

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er úrkoma búin að ganga verulega niður, en enn þá er rigning. Samkvæmt spá mun stytta upp í dag og ekki er búist við áframhaldandi rigningu á næstu dögum.

Nokkur viðbúnaður hefur verið á Austurlandi frá því í gær vegna úrkomunnar, þá sérstaklega á Eskifirði og Seyðisfirði. Þar hefur þurft að rýma hús, rjúfa vegi og moka úr ám til að létta álagi á mannvirki og forða tjóni að því er fram kemur í tilkynningunni frá Almannavörnum.

Fylgjast vel með ástandi á svæðinu

„Gríðarmikil úrkoma hefur verið á svæðinu en við þær aðstæður má búast við grjóthruni víða og jafnvel aurskriðum við ár og læki,“ segir í tilkynningunni.

Ofanflóðavakt Veðurstofunnar hefur fylgst vel með ástandi á svæðinu í náinni samvinnu við lögreglu og Almannavarnir. Þá hefur lögreglan á Austurlandi samhæft aðgerðir í samstarfi við sveitarfélögin og starfsmenn þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert