Opna nýju vatnsrennibrautirnar á Akureyri

Rennibrautirnar eru þrjár. Hæð á uppgönguturni er 14 metrar. Þvermál …
Rennibrautirnar eru þrjár. Hæð á uppgönguturni er 14 metrar. Þvermál röranna er 90-120 sm og heildarlengd þeirra er um 135 metrar. Ljósmynd/Ólafur Arnar Pálsson

Á morgun verða þrjár nýjar vatnsrennibrautir teknar í notkun í Sundlaug Akureyrar en framkvæmdir vegna breytinga á sundlaugasvæðinu og uppsetningar nýju lauganna hófust í október síðastliðnum.

Í tilefni af vígslu brautanna verður opið í Sundlaug Akureyrar til miðnættis fimmtudaginn 13. júlí og föstudaginn 14. júlí. Frítt verður í sund á fimmtudeginum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Þar segir að áður en öllum sem áhuga hafa verður hleypt í nýju vatnsrennibrautirnar, fer fram stutt athöfn sem hefst klukkan 14 en þar verður meðal annars tilkynnt um sigurvegara í samkeppni um nöfn á brautirnar þrjár. Þeir sem þóttu koma með bestu tillögurnar, og voru dregnir úr hópi þeirra sem lögðu fram sömu tillögur, fá að renna sér fyrstir í þeirri braut sem þeir nefndu.

Rennibrautirnar eru sem áður segir þrjár. Hæð á uppgönguturni er 14 metrar. Þvermál röranna er 90-120 sm og heildarlengd þeirra er um 135 metrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert