Þjóðhátíð í Eyjum formlega hafin

Þjóðhátíð 2017 er formlega hafin í Vestmannaeyjum en hátíðin var …
Þjóðhátíð 2017 er formlega hafin í Vestmannaeyjum en hátíðin var sett í Herjólfsdal í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Veðurblíðan lék við gesti þjóðhátíðar þegar hátíðin var sett með formlegum hætti í Herjólfsdal í dag. Það var Stefán Jónsson sem setti þjóðhátíð og hátíðarræðu flutti Eyjakonan Arndís María Kjartansdóttir. Þá fluttu Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja og Lúðrasveit Vestmannaeyja tónlistaratriði.

Góð stemning var í sólskininu í dalnum og margt um manninn. Gestum mun þó enn fjölga og smátt og smátt tínast fleiri gestir á svæðið en svo virðist sem það stefni í afar fjölmenna þjóðhátíð í ár.

Barnadagskrá hófst klukkan 15:45 þar sem Brúðubíllinn mætti meðal annars á svæðið. Kvöldvaka hefst svo klukkan níu þar sem Ragga Gísla frumflytur þjóðhátíðarlagið 2017 á stóra sviðinu. Brennan verður svo á sínum stað á Fjósakletti á miðnætti og heldur gleðin áfram fram eftir nóttu þar sem fjöldi listamanna kemur fram.

mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Það var Stefán Jónsson sem setti þjóðhátíð við hátíðlega athöfn …
Það var Stefán Jónsson sem setti þjóðhátíð við hátíðlega athöfn í Herjólfsdal í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Lögreglan í Vestmannaeyjum mun að vanda standa vaktina alla helgina.
Lögreglan í Vestmannaeyjum mun að vanda standa vaktina alla helgina. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Hátíðarávarp flutti Eyjakonan Arndís María Kjartansdóttir.
Hátíðarávarp flutti Eyjakonan Arndís María Kjartansdóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Herjólfsdalur skartar sínu fegursta í góða veðrinu.
Herjólfsdalur skartar sínu fegursta í góða veðrinu. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert