Katrín skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu

Katrín Björg Ríkarðsdóttir.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir.

Katrín Björg Ríkarðsdóttir hefur verið skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til næstu fimm ára af Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra. Embættið var auglýst laust til umsóknar í júní og rann umsóknarfrestur út 17. júlí. Krist­ín Ástgeirs­dótt­ir lét af störf­um sem framkvæmdastjóri stofnunarinnar að eig­in ósk 31. ág­úst.

Umsækjendur voru tíu en einn þeirra dró umsókn sína til baka. Ráðgefandi nefnd sem mat hæfni umsækjenda skilaði niðurstöðum sínum til ráðherra 8. september síðastliðinn og mat Katrínu Björgu vel hæfa til starfsins. Ákvörðun ráðherra um skipun Katrínar Bjargar var tekin að undangengnum viðtölum við þá umsækjendur sem nefndin mat hæfasta, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Katrín Björg lauk M.Ed-gráðu í menntunarfræðum með áherslu á kynjajafnrétti frá Háskólanum á Akureyri árið 2011. Áður hafði hún lokið menntun í uppeldis- og kennslufræðum frá sama skóla árið 1996 og BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1992.

Katrín hefur frá árinu 2014 verið aðstoðarmaður bæjarstjóra á Akureyri. Árin 2006 – 2014 var hún framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrar, 2003 – 2006 var hún jafnréttisráðgjafi jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrar og árin 2000 – 2003 starfaði hún sem sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Áður starfaði hún við Minjasafnið á Akureyri og við Héraðsskjalasafn bæjarins.

Í umsögn hæfnisnefndar um Katrínu Björgu segir að hún sé reyndur stjórnandi með ótvíræða leiðtogahæfileika, jákvæð, skipulögð og þægileg í samskiptum. Hún hafi verið mikið viðloðandi jafnréttismál á starfsferli sínum og meðal annars tekið þátt í mótun starfsemi Jafnréttisstofu frá stofnun hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert