Vinnudeilan send til sáttasemjara að nýju

Farþegaþota Primera Air á Reykjavíkurflugvelli.
Farþegaþota Primera Air á Reykjavíkurflugvelli.

Dómur Félagsdóms frá því í gær, um að verkfallsboðun Flugfreyjufélags Íslands á hendur lettneska flugfélaginu Primera Air Nordic hafi verið ólögmæt, felur aðeins í sér tímabundna töf á því ferli sem Flugfreyjufélagið, með aðstoð ASÍ og aðildarfélaga þess, hefur verið í um tveggja ára skeið og snýr að því að fá Primera Air Nordic til þess að ganga til kjarasamninga um þau störf sem unnin eru út frá Íslandi um borð í flugvélum félagsins.

Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands og ASÍ.

Þar segir enn fremur að vinnudeilan standi enn yfir og verði send ríkissáttasemjara að nýju, enda sé það „með öllu óásættanlegt að fyrirtæki á EES-svæðinu sendi hingað til lands starfsmenn, dulbúi stöðu þeirra sem „verktaka“ og greiði þeim brot af þeim launum sem greidd eru sambærilegum starfsmönnum flugfélaga sem stunda starfsemi hér á landi.“

Þetta segja FFÍ og ASÍ að feli í sér félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og ólögmæta samkeppni í íslensku atvinnulífi. 

Efnisatriði voru ekki tekin til skoðunar

Verkfallsboðunin var sem áður segir dæmd ólögmæt í Félagsdómi, en það var sökum þess að formskilyrði um aðkomu ríkissáttasemjara að málinu þóttu ekki hafa verið uppfyllt. Efnisatriði málsins voru því í raun ekki tekin til frekari skoðunar af meirihluta Félagsdóms.

Ástæða þess er sú að ríkissáttasemjari, þrátt fyrir beiðni FFÍ, hafnaði að taka deiluna til sáttameðferðar vegna vafa um heimildir sínar um aðkomu að henni. Sá vafi er ekki lengur til staðar þar sem Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkissáttasemjari hefði átt að láta deiluna til sín taka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert