Vilja hækka frístundastyrk

Kópavogur.
Kópavogur. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Stefnuskrá Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí var samþykkt á félagsfundi nýverið. Samfylkingin vill m.a. hækka frístundastyrki barna í bænum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Framtíðarsýn og stefna Samfylkingarinnar fyrir Kópavog árin 2014 – 2018 felst m.a. í:

  • að hækka frístundastyrk með hverju barni á árinu 2015 í 30.000 krónur og vinna þannig að fjölgun barna í íþrótta- og frístundastarfi. Styrkurinn mun einnig nýtast til að greiða niður tónlistarnám. Á kjörtímabilinu verður frístundastyrkur hækkaður í 50.000 krónur.
  • að skoða þann möguleika að innrita börn í grunnskóla tvisvar á ári. Um áramót á sjötta aldursári hefji börn fædd fyrri hluta árs skólagöngu og í ágúst þau sem fædd eru síðari hluta ársins. Með því að taka helming hvers árgangs fyrr á árinu inn í grunnskóla skapast rými í leikskólum. Þannig styttist tíminn sem foreldrar þurfa að brúa frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til skólakerfið tekur við. Með lengingu fæðingarorlofs verður samfellu komið á. Auk þess er munur á þroska barna sem fædd eru t.d. í janúar og í desember og út frá þeim forsendum gæti verið gott fyrir börnin að innritun í skólana fari fram tvisvar á ári.
  • að byggja upp traustan og hagstæðan leigumarkað með samstarfi við húsnæðisfélög eins og Búseta og Félagsstofnun stúdenta. Enn fremur að leita leiða til að stofna hlutafélag í eigu Kópavogsbæjar sem heldur utan um félagslegt íbúðarhúsnæði bæjarins, húsnæði fyrir fatlaða og þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Markmiðið verður fjölgun íbúða og sjálfbær rekstur. Samfylkingin í Kópavogi tekur undir hugmyndir ASÍ um samstarf sveitarfélaga og ríkis um uppbyggingu á leiguhúsnæði.
  • að stofnað verði öldungaráð í Kópavogi, skipað fulltrúum frá hinum ýmsu samtökum aldraðra í Kópavogi. Öldungaráðið á að vera ráðgefandi við öll málefni sem snerta málefni eldri borgara.
  • að Skólahljómsveit Kópavogs komist í framtíðarhúsnæði fyrir 50 ára afmæli sveitarinnar árið 2017.
  • að heimila að 2% af kosningabærum íbúum geti krafist borgarafundar um tiltekið málefni og að 10% af kosningabærum íbúum geti óskað eftir almennri atkvæðagreiðslu. Tekin verði upp hagsmunaskráning bæjarfulltrúa til birtingar á vef bæjarins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert