Anna Marta og Lovísa slógu í gegn

Tvíburasysturnar Anna Marta og Lovísa slógu í gegn með matreiðslunámskeið …
Tvíburasysturnar Anna Marta og Lovísa slógu í gegn með matreiðslunámskeið sitt sem Hagkaup stóð fyrir í tilefni Heilsudaga. Ljósmynd/Blik Stúdíó

Í tilefni heilsudaga er Hagkaup að bjóða upp á ýmsa viðburði og á dögunum boðið upp á matreiðslunámskeið með tvíburasystrunum Önnu Mörtu og Lovísu Ásgeirsdætrum sem slegið hafa í gegn með sínum frábæru vörum frá vörumerkinu Anna Marta. Þetta eru meðal annars súkkulaðihringir sem þær hafa verið að gera og hafa notið mikilla vinsælda. Á námskeiðinu fóru þær í gegnum einfaldar og fljótlegar uppskriftir sem eiga það sameiginlegt að vera bráðhollar og ljúffengar. 

Þátttakendur nutu þess að gæða sér á kræsingunum sem boðið …
Þátttakendur nutu þess að gæða sér á kræsingunum sem boðið var upp á. Ljósmynd/Blik Stúdíó

Matreiðslunámskeiðið sló í gegn

„Má þar nefna hráfæðis sushi, kjúklingapastarétt, ofnbakað eggjaköku og svo auðvitað súkkulaði í lokin. Við kynntum einnig nýjustu afurðina okkar sem er stórkostlegur hnetuhringur sem hreinlega bráðnar í munni,“ segir þær systur Anna Marta og Lovísa og voru þær í skýjunum með þátttökuna. Það var samdóma álit þátttakenda að þetta hafi við skemmtileg kvöldstund með þessum frábæru heilsusystrum. 

Systurnar fóru á kostum og tóku fyrir nokrkar laufléttar uppskriftir …
Systurnar fóru á kostum og tóku fyrir nokrkar laufléttar uppskriftir að hollusturéttum. Ljósmynd/Blik Stúdíó

Eins og áður sagði þá standa þær systur bak við vörumerkið Anna Marta og þær eru að framleiða ferskar, hollar og náttúrulegar matvörur úr hágæða hráefni án allra aukaefna. Systurnar leggja áherslu á að vörurnar séu bæði ljúffengar og aðlaðandi og færi fólki vellíðan og jákvæða upplifun. Allar vörurnar eru handgerðar og unnar í fageldhúsi undir ströngum gæðaeftirlitsstöðlum.

Handbragðið til fyrirmyndar.
Handbragðið til fyrirmyndar. Ljósmynd/Blik Stúdíó
Gleðin er ávallt við völd hjá þeim systrum.
Gleðin er ávallt við völd hjá þeim systrum. Ljósmynd/Blik Stúdíó
Kræsingarnar voru aðlaðandi.
Kræsingarnar voru aðlaðandi. Ljósmynd/Blik Stúdíó
Girnilega vefjur voru í boði.
Girnilega vefjur voru í boði. Ljósmynd/Blik Stúdíó
Ljósmynd/Blik Stúdíó
Systurnar framleiða líka pestó.
Systurnar framleiða líka pestó. Ljósmynd/Blik Stúdíó
Ljósmynd/Blik Stúdíó
Ljósmynd/Blik Stúdíó
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert