Tónelskar samlokur

Nú fást tónelskar samlokur sem spila jólalög í Tescobúðunum í …
Nú fást tónelskar samlokur sem spila jólalög í Tescobúðunum í Bretlandi.k Reuters

Breska verslunarkeðjan Tesco hefur sett á markað fyrstu tónelsku samlokuna. Samlokan spilar jólalög þegar umbúðirnar eru opnaðar. Byggir þessi tækni á sama grunni og heilla- og árnaðarkort sem hafa verið til á markaðnum um nokkurt skeið.

Samkvæmt ananova.com er samlokan með kalkún með trönuberjasósu og spilar nokkur jólalög. „Við höfum verið að skoða þennan möguleika töluvert lengi og ákváðum að jólin væru góður tími til að bjóða upp á tónelskar samlokur,” sagði talsmaður verslunarkeðjunnar Jonathan Church. „Ef þetta verður vinsælt getur verið að fleiri samlokutegundir fari að taka lagið. Ein hugmyndin er að hefja samstarf við plötuútgefendur og getur verið að nýjustu popplögin heyrist fyrst í samlokunum okkar.”

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson