Megrunarlyf sem er ekki lyfseðilsskylt verður brátt til sölu í Bandaríkjunum en þar eru tveir af hverjum tíu mönnum of þungir eða um 60 milljónir manna. Lyfið er í töfluformi og heitir Xenical. Lyfja- og matvælaeftirlitið (FDA)komst að þeirri niðurstöðu að selja bæri lyfið án lyfseðils og er pillan fyrsta megrunarlyfið sem seld er með þeim hætti. Í stuttu máli sér lyfið til þess að um fjórðungur neyttrar fitu skili sér beint í gegnum meltingarveginn. Margir telja slíkt lyf þó ekki lausn á offituvandamáli þjóðarinnar.