Beckham hjónunum bannað að hjala við Suri

Victoriu og David Beckham hefur verið boðið að hitta hina …
Victoriu og David Beckham hefur verið boðið að hitta hina fjögurra mánaða gömlu Suri Cruise. STEPHEN HIRD

Tom Cruise og Katie Holmes hafa boðið Victoriu og David Beckham heim til sín til að sjá dóttur sína Suri. Það mun hins vegar hafa komið Beckham hjónunum á óvart að heimboðinu fylgdu strangar reglur um það hvernig þau ættu að haga sér í heimsókninni.

„David og Victoriu finnst það heiður að Tom og Katie skuli hafa boðið þeim. Þeim var þó nokkuð brugðið yfir listanum sem fylgdi yfir þær reglur sem þeim ber að fara eftir,” segir ónefndur heimildarmaður dagblaðsins Daily Star. „Þau mega ekki taka myndavélar með og mega hvorki snerta Suri né hjala við hana. Þetta verður mjög erfitt fyrir Victoríu því hún elskar smábörn.”

Talið er að rekja megi reglurnar til þess að Cruise og Holmes aðhyllast kenningar Vísindakirkjunnar en þar er m.a. kveðið á um það að ekki megi hjala við smábörn þar sem það geti tafið þroska þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson