Umfjöllun á ekki við um Lífeyrissjóð verzlunarmanna

Hús verslunarinnar þar sem Lífeyrissjóður verzlunarmanna er til húsa.
Hús verslunarinnar þar sem Lífeyrissjóður verzlunarmanna er til húsa. mbl.is/Ómar

Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir að  umfjöllun í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um að raunveruleg staða lífeyrissjóðanna sé mun veikari en opinberar tölur gefi til kynna, eigi ekki við um stöðu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Afskriftir hafi verið færðar með varfærnum hætti.

Í yfirlýsingunni gerir Þorgeir einnig grein fyrir boðsferðum sem fulltrúar sjóðsins hafa farið. Þar kemur fram, að á árunum 2005 til og með 2008 hafi forstjóri og starfsmenn eignastýringar LV alls tekið þátt í fjórtán kynnisferðum fyrirtækja. Þar af tók forstjóri sjóðsins þátt í átta ferðum á umræddu fjögurra ára tímabili. Ferðirnar voru flestar tveggja til þriggja daga vinnuferðir.

Yfirlýsinginn er eftirfarandi:

„Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu, sunnudaginn 29. mars 2009, er umfjöllun sem lýtur að því að raunveruleg staða lífeyrissjóðanna sé mun veikari en opinberar tölur gefa til kynna. Sú umfjöllun sem þar kemur fram á ekki við um stöðu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

Því til áréttingar er athygli vakin á því að við áramótauppgjör, sem staðfest hefur verið af endurskoðanda  og stjórn sjóðsins, var eign sjóðsins í fyrirtækjaskuldabréfum metin með varfærnum hætti og færð verulega niður eins og tölur í eftirfarandi  umfjöllun bera með sér. Hvað eign í erlendum skuldabréfum varðar þá er hún óveruleg í hlutfalli af eignum sjóðsins og alfarið í formi eignar í erlendum skuldabréfasjóði sem fjárfestir í dreifðu safni erlendra ríkisskuldabréfa. Metin áhrif þeirra áfalla sem dunið hafa á síðan um áramót með falli Straums, SPRON og Sparisjóðabankans leiða til þess að áætluð tryggingafræðileg staða versnar um 1,6% sem þýðir að hún færi úr -7,2% í -8,8% sem hefur ekki bein áhrif á réttindi og lífeyri sjóðfélaga.

Afskriftir skuldabréfa í ársuppgjöri

Fall viðskiptabankanna í október 2008 og óvissa í íslensku efnahagsumhverfi í kjölfarið hefur haft í för með sér niðurfærslu á skuldabréfaeigninni og afskriftir á stórum hluta innlendrar hlutabréfaeignar sjóðsins. Lífeyrissjóður verzlunarmanna færði við ársuppgjör varúðarfærslu vegna skuldabréfa í kjölfar hruns fjármálakerfisins samtals að fjárhæð 9,9 milljarða. Þar af voru 4,3 milljarðar vegna skuldabréfa banka og sparisjóða og 5,6 milljarðar vegna skuldabréfa fyrirtækja.

Sjóðurinn átti ekki óveðtryggð skuldabréf/víxla nokkurra fyrirtækja sem verið hafa í fréttum að undanförnu t.d. Stoða, Landic Property, Nýsis, Milestone, Baugs, Teymis, 365, Kögun, Mosaic Fashions og Atorku. Skuldabréf eftirtaldra útgefenda, í eigu sjóðsins, voru til varúðar færð niður sjá tölur í sviga; Exista (60%), Fl Group (90%), Samson (95%) og Eimskip (60%). Ekki var talin ástæða til að færa varúðarafskriftir vegna skuldabréfa eftirtalinna útgefenda; Skipti (Síminn), Tryggingamiðstöðin, Landsvirkjun, RARIK, Alfesca, Bakkavör, Orkuveita Reykjavíkur og HB Grandi.

Þar sem erlend skuldabréfaeign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er óveruleg og alfarið í formi hlutdeildarskírteina í skuldabréfasjóði sem fjárfestir í ríkisskuldabréfum er ekki þörf varúðarafskrifta vegna þeirra.

Frá áramótum hafa síðan Straumur, Sparisjóðabankinn og SPRON fallið. Áætluð áhrif þess á lífeyrissjóðinn leiðir til þess að tryggingafræðileg staða sjóðsins versnar um 1,6% úr -7,2% í -8,8% og er því staðan innan lögbundinna vikmarka.

Með vísan til ofanritaðs á sú umfjöllun um eignastöðu lífeyrissjóða sem fram kemur í fréttaskýringu Morgunblaðsins ekki við um Lífeyrissjóð verzlunarmanna.

Kynnisferðir

Á árunum 2005 til og með 2008 tóku forstjóri og starfsmenn eignastýringar LV alls þátt í fjórtán kynnisferðum fyrirtækja. Þar af tók forstjóri sjóðsins þátt í átta ferðum á umræddu fjögurra ára tímabili. Ferðirnar voru flestar tveggja til þriggja daga vinnuferðir.

Kynnisferðirnar tengdust kynningu á erlendri starfsemi félaganna sem í hlut áttu. Við eignastýringu er gagnlegt að kynnast stjórnendum hlutafélaga og  hugmyndum þeirra um framtíðarsýn félaganna. Það er sérstaklega mikilvægt þegar um viðamiklar breytingar er að ræða í rekstri félaganna líkt og þegar um kaup á öðrum fyrirtækjum er að ræða. Þannig stofnaði Actavis til kynnisferðar í tilefni af kaupum félagsins á Alpharma, Bakkavör til kynnisferðar v/kaupa á Geest, FL-Group til kynnisferða v/kaupa á Sterling og kaupa á Refresco og Royal Unibrew, Marel v/kaupa á Stork Food System, Icelandair vegna kaupa á Travelservice, Atorka til kynningar á stærstu verksmiðju Promens í Þýskalandi og Avion v/kaupa á Daalimpex og Excel Airways auk þess sem fjármálafyrirtækin efndu til kynnisferða v/erlendrar starfsemi fyrirtækjanna.

Í kynnisferðum fyrirtækjanna tóku þátt ásamt fulltrúum lífeyrissjóða fleiri stofnanafjárfestar ásamt starfsmönnum greiningardeilda bankanna auk frétta- og blaðamanna í flestum tilvikum. Hvað aðrar ferðir varðar hefur forstjóri sjóðsins í undantekningartilvikum, einu sinni til tvisvar á ári, þegið boð í veiði innanlands. Starfsmenn lífeyrissjóðsins hafa ekki tekið þátt í veiðiferðum erlendis t.d. tilvitnaðri  ferð Morgunblaðsins til veiða í Rússlandi, fóru ekki á úrslitaleik í Meistarkeppni Evrópu í Aþenu, tóku ekki þátt í ferðum tengdum akstursíþróttum og  hafa ekki  þegið boð í skíðaferðir eða golfferðir á erlenda grund.

Stjórnarmenn sjóðsins hafa ekki tekið þátt í kynnisferðum fyrirtækja, þegið veiðiferðir eða gjafir frá fyrirtækjum vegna starfa sinna í stjórn sjóðsins. Um jól hafa forstjóri og starfsmenn eignastýringar þegið eftir atvikum minniháttar tækifærisgjafir frá sumum viðskiptaaðilum sjóðsins.

Þorgeir Eyjólfsson forstjóri
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna"

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert