Viðræður um rekstur á lokastigi

Egilshöll.
Egilshöll. mbl.is/Árni Sæberg

Samningaviðræður vegna reksturs Egilshallar eru nú á lokastigi en með nýjum leigusamningi vonast borgin til að tryggja áframhaldandi íþróttastarfsemi og aðra þjónustu í húsinu. Frágangur bílastæðaplans við húsið er skilyrði borgarinnar fyrir áframhaldandi leigusamningi.

Viðræður um áframhaldandi leigu borgarinnar á aðstöðu í Egilshöll hafa staðið yfir í allan vetur en viðsemjendur hennar eru skiptaráðandi Nýsis, Landsbankinn og íþróttafélagið Fjölnir. Markmiðið er að tryggja áfram starfsemi í húsinu en fram kom í svari sem lagt var fram í umhverfis- og samgönguráði borgarinnar í síðustu viku við fyrirspurn Samfylkingar, að allra leiða hefði verið „leitað til að koma í veg fyrir að rekstur í húsinu stöðvaðist“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert