Handteknir fyrir sterasmygl

Frá Litla Hrauni.
Frá Litla Hrauni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lögreglan á Selfossi handtók þrjá karlmenn í dag vegna tilraunar til að smygla sterum inn á Litla Hraun. Mennirnir fóru með bíl í bón á fangelsislóðinni en við leit í ökutækinu fannst mikið magn af sterum í föstu og fljótandi formi. Ökumaður bifreiðarinnar var grandalaus og vissi ekki af smyglinu.

Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið upplýst enda hafi höfuðpaurinn játað verknaðinn á sig.

Lögreglan segir að þó algengt sé að menn reyni að smygla sterum í fangelsið hafi hún ekki séð þessari aðferð beitt áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert