Enn hækkar í Gígjukvísl

Gígja breiðir nú úr sér undir brúnni.
Gígja breiðir nú úr sér undir brúnni. mbl.is/Sigurður

Vatn hækkar enn í Gígjukvísl en sjálfvirkur vatnshæðarmælir bendir til þess að hlaupið sé að ná hámarki. Mælirinn sýnir nú að vatnshæð er 4,49 metrar. Rennsli í ánni mældist 1650 rúmmetrar í gærkvöldi.  

Gunnar Sigurðsson, vatnamælingamaður á Veðurstofu, sagði í gærkvöldi að áin væri búin að breiða úr sér eins og hún gæti niðri við brúna. Hann fór upp að jökuljaðrinum í fyrradag og aftur í gær og sagði að miklar breytingar hefðu átt sér þar stað á þessum sólarhring. Stór lón og tjarnir hefðu myndast við jökulinn.

Gunnar sagði að eitthvert vatn úr Grímsvötnum væri komið í Súlu, en þar hefur mælst aukin leiðni. Rennsli í ánni er hins vegar mjög lítið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert