Nektaratriði Janet Jackson fór fyrir brjóstið á áhorfanda

Janet Jackson og Justin TImberlake eftir atvikið umdeilda.
Janet Jackson og Justin TImberlake eftir atvikið umdeilda. AP

Sjónvarpsáhorfandi hefur ákveðið að höfða skaðabótamál gegn Janet Jackson vegna þess að hún beraði á sér annað brjóstið í hálfleik Super Bowl-ruðningsleiksins.

Hinn 47 ára bankagjaldkeri Terri Garlin hefur fengið lögfræðinga til að útbúa fyrir sig átta blaðsíðna lögsókn á hendur Janet þar sem hún lýsir því hversu alvarleg áhrif uppátæki Janet hafði á hana og aðra Bandaríkjamenn, hún hafi orðið "hneyskluð, reið, vandræðaleg og hlotið alvarlegan skaða af".

Verði Janet fundinn sek, ásamt ábyrgðarmönnum útsendingarinnar MTV, CBS og Viacom, á hún yfir höfði sér fjársekt sem gæti numið milljónum dala. Er í málshöfðuninni ítrekað að fjöldi barna hafi horft á Super Bowl og hlotið varanlegan skaða af.

Ábyrgðarmenn útsendingarinnar hafa svarið af sér að hafa haft vitneskju um uppátækið og Justin líka og hún hefur viðurkennt að þetta hafi verið hennar hugmynd.

Fyrir vikið hefur verið ákveðið að leyfa henni ekki að koma fram á Grammy-verðlaunahátíðinni eins og áður hafði verið fyrirhugað, auk þess sem beinu útsendingunni verður seinkað um fimm sekúndur til að fyrirbyggja að annað eins hneyskli geti komið upp.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson