Andri: Ég held að öllum hafi leiðst

Andri Marteinsson, þjálfari Víkings, sagði leik Víkings og Grindavíkur í kvöld hafa verið leiðinlegan og sjálfsagt hafi öðrum þótt það einnig, leikmönnum og áhorfendum.

Andri sagðist jafnframt líta svo á að Víkingar hafi misst af tveimur stigum í þessum leik en ekki unnið eitt.

Spurður um Egil Atlason sem er meiddur sagði Andri að hann þyrfti að fá tíma til að sinna endurhæfingunni en meiðslin væru ekki mjög alvarleg. Egill varð fyrir lærmeiðslum í leiknum á móti FH í síðustu umferð.

Andri Marteinsson
Andri Marteinsson mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert