Kjartan orðinn leikmaður Horsens

Kjartan Henry Finnbogason er orðinn leikmaður Horsens.
Kjartan Henry Finnbogason er orðinn leikmaður Horsens. mbl.is/Eggert

Kjartan Henry Finnbogason skrifaði í dag undir samning við danska 1. deildarfélagið Horsens. Samningurinn gildir til sumarsins 2016.

„Við erum stoltir og ánægðir með að geta kynnt svo sterkan framherja til leiks. Hann gefur okkur vigt og verður stanslaus ógn við varnarmenn andstæðinganna. Hann er stórhættulegur í teignum en líka tilbúinn að vinna fyrir liðið og gerir allt til að skora mörk,“ sagði Bo Henriksen, Íslandsvinurinn sem þjálfar Horsens.

Kjartan Henry skoraði fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar og tryggði KR-ingum meðal annars sigur í bikarkeppninni.

Horsens er í 8. sæti af 12 liðum í B-deildinni með sjö stig eftir sex leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert