Landsliðskona Taívan í Árbæinn

Lin Man-ting
Lin Man-ting

Kvennalið Fylkis í knattspyrnu hefur samið við Lin Man-ting, landsliðskonu frá Taívan, um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili.

Man-ting er 25 ára gömul og getur spilað sem miðjumaður eða varnarmaður. Hún kemur frá liði Asptt Albi í Frakklandi en hefur einnig verið á mála hjá Real Valladolid á Spáni. Fylkir var með samlöndu hennar innan sinna raða síðasta sumar, Shu-o Tseng, en hún fór til Frakklands áður en tímabilinu lauk.

Man-ting fékk leikheimild í dag og getur því leikið með Fylki í fyrstu umferðinni í næstu viku þegar liðið fær Val í heimsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert