Dokara kominn í bann

Emir Dokara.
Emir Dokara. mbl.is/Styrmir Kári

Emir Dokara, varnarmaður nýliða Víkings Ólafsvíkur, varð í dag fyrsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni í knattspyrnu sem er úrskurðaður í leikbann fyrir að safna að sér spjöldum.

Dokara fékk að líta sitt fjórða gula spjald í 5:1 tapi Víkinga gegn Fjölni á sunnudaginn og var hann í dag úrskurðaður í eins leiks bann. Dokara missir því af leik Ólsara gegn Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert