Fylkir ekki í vandræðum í Garðinum

Oddur Ingi Guðmundsson og Fylkismenn gátu fagnað í kvöld.
Oddur Ingi Guðmundsson og Fylkismenn gátu fagnað í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Fylkir tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Borgunarbikarsins, eftir stórsigur á Víði í Garði suður með sjó í kvöld, 5:0.

Staðan í hálfleik var 2:0 fyrir Fylkismenn, sem bættu svo þremur mörkum við eftir hlé. Oddur Ingi Guðmundsson skoraði tvö marka liðsins og þeir Arnar Már Björgvinsson, Albert Brynjar Ingason og Hákon Ingi Jónsson eitt marka hver.

Þetta er annar 5:0-sigurinn í bikarnum í kvöld, en ÍBV vann Fjölni með sömu markatölu í Eyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert