Selfoss fær bandarískan liðsstyrk

Alex Alugas er orðin leikmaður Selfoss.
Alex Alugas er orðin leikmaður Selfoss. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Bandaríski framherjinn Alex Alugas hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun hún leika með liðinu í síðari hluta 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Alugas skoraði sjö mörk í sex leikjum með Sindra á síðustu leiktíð og gekk í kjölfarið í raðir FH þar sem hún skoraði þrjú mörk í níu leikjum. Fotbolti.net greindi frá þessu í kvöld. 

Selfoss er í þriðja sæti 1. deildar kvenna, einu stigi frá HK/Víkingi sem er í öðru sæti og tveimur stigum á eftir toppliði Þróttar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert