Spá mbl.is: Þriðja sætið

Stjörnunni er spáð þriðja sæti eftir að hafa endað í …
Stjörnunni er spáð þriðja sæti eftir að hafa endað í því fjórða í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjarnan úr Garðabæ hafn­ar í þriðja sæti Bestu deild­ar kvenna í knatt­spyrnu á kom­andi keppn­is­tíma­bili, sam­kvæmt spá Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Stjarnan fékk 151 stig þegar at­kvæði spá­mann­anna voru lögð sam­an en þar voru gef­in stig frá einu (fyr­ir 10. sætið) upp í tíu (fyr­ir fyrsta sætið). Stjörnukonur eru ellefu stigum fyrir ofan Þrótt sem hafnaði í fjórða sætinu í spánni.

Stjarnan hafnaði í fjórða sæti deildarinnar 2023, eftir að hafa verið komin í annað sætið þegar þremur umferðum var ólokið. Besti árangur liðsins síðustu sjö ár er annað sætið árið 2022 en blómaskeiðið í sögu Stjörnunnar er árin 2011 til 2016 þegar Garðabæjarliðið varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari. Annars hefur Stjarnan leikið óslitið í efstu deild frá árinu 1992 og aldrei endað neðar en í sjötta sæti. 

Lið Stjörnunnar sá á brott fjórum lykilmönnum fyrir þetta tímabil því Jasmín Erla Ingadóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir fóru í Val, Heiða Ragney Viðarsdóttir í Breiðablik og Sædís Rún Heiðarsdóttir fór í atvinnumennsku til Noregs. Tvær bandarískar konur eiga að fylla í stærstu skörðin en þær Hannah Sharts og Caitlin Cosme eiga báðar að vera öflugir varnarmenn.

Kristján Guðmundsson hefur þjálfað Stjörnuna frá árinu 2019 og er að hefja sitt sjötta tímabil með liðið.

Komn­ar:
13.4. Hannah Sharts frá KuPS (Finn­landi)
10.4. Caitlin Cosme frá Or­lando Pri­de (Banda­ríkj­un­um)
  8.2. Henrí­etta Ágústs­dótt­ir frá HK
  3.2. Esther Rós Arn­ars­dótt­ir frá FH
  1.2. Heiðdís Emma Sig­urðardótt­ir frá Grinda­vík (úr láni)
  1.2. Jó­hanna Mel­korka Þórs­dótt­ir frá Fram (úr láni)
  1.2. Ólína Ágústa Valdi­mars­dótt­ir frá Fram (úr láni)

Farn­ar:
16.2. Mál­fríður Erna Sig­urðardótt­ir í Val
  1.2. Heiða Ragney Viðars­dótt­ir í Breiðablik
  1.2. Jasmín Erla Inga­dótt­ir í Val
  1.2. Eyrún Vala Harðardótt­ir í Fram (var í láni hjá HK)
31.1. Sæ­dís Rún Heiðars­dótt­ir í Vål­erenga (Nor­egi)

Fyrstu leik­ir Stjörnunnar
22.4. Stjarnan - Víkingur R.
27.4. Keflavík - Stjarnan
  3.5. Stjarnan - Tindastóll
  8.5. Breiðablik - Stjarnan
14.5. Stjarnan - FH

Lokastaðan:
1 ??
2 ??
3 Stjarnan 151
4 Þróttur R. 140
5 Þór/KA 126
6 Vík­ing­ur R. 103
7 FH 103
8 Fylk­ir 47
9 Tinda­stóll 46
10 Kefla­vík 42

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert