18 leikir í röð án marks hjá Torres

Fernando Torres.
Fernando Torres. Reuters

Spænska framherjanum Fernando Torres, sem leikur með Chelsea, er algjörlega fyrirmunað að skora en hann hefur nú spilað 18 leiki í röð án þess að finna netmöskvana.

Torres var í liði Chelsea í gær sem tapaði fyrir Everton á Goodison Park og var þetta 14. leikurinn í röð í úrvalsdeildinni sem Spánverjunum tekst ekki að skora. Torres hefur aðeins skorað 2 mörk í 19 leikjum í úrvalsdeildinni eða helmingi færri en fyrirliðinn John Terry.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert