Sunderland kaupir Fletcher frá Úlfunum

Steven Fletcher er kominn aftur í úrvaldeildina.
Steven Fletcher er kominn aftur í úrvaldeildina. Ljósmynd/wolves.co.uk

Skoski framherjinn Steven Fletcher er genginn í raðir Sunderland frá Úlfunum en Sunderland borgar 12 milljónir punda fyrir leikmanninn.

„Fletcher hefur staðist læknisskoðun og samþykkt sín kaup og kjör. Við erum bara reyna klára pappírsvinnuna fyrir skilafrestinn á hádegi,“ segir Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Sunderland.

Sunderland verður að skila inn staðfestingu á félagaskiptunum til ensku úrvalsdeildarinnar fyrir hádegi í dag svo Fletcher geti verið í leikmananhópi liðsins gegn Reading á morgun.

Steven Fletcher skoraði 12 mörk fyrir Úlfana í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið féll í B-deildina. Hann var keyptur til Úlfanna á sjö milljónir punda árið 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert